sunnudagur, maí 27, 2007

Allt að gerast

Núna erum við búin að láta smíða hillur í fataskápinn svo við getum hafist handa við að græja fataskápinn hans Hrafns á morgun. Ekki seinna vænna þar sem drengurinn á orðið þvílíkt magn af fötum þar til hann verður tæplega 2ja ára :) Ekki slæmt það. Fórum í útskriftarveislu í dag til frænku hans Bigga. Hrafn fékk mjög mikla athygli því allir voru að sjá hann í fyrsta skipti. Fyndið þegar við förum í svona fjölskylduboð að þá liggur við að við sjáum hann ekkert allan tíman...hehe...ömmur og afar berjast um að fá að knúsa snúllan sinn og Vala Ósk tók nú líka sinn skerf af því. Við fengum þó að taka hann með okkur heim í lok veislunnar...hehe ;)

Í dag er nammidagur, þess vegna sitjum við inn í stofu með kassa af smá Draumum. Ekkert smá mikið magn í þessum blessaða kassa..fjewwww...ætla að hætta að gúffa þessu í mig núna því allt þetta súkkulaði getur ekki verið gott fyrir Hrafn, hann fær súkkulaðið náttúrulega endurunnið í gegnum mömmumjólkina sína :) Erum að horfa á Million Dollar Baby. Vorum búin að sjá hana á sínum tíma en ég var búin að steingleyma henni.

Næsta mál á dagskrá er að koma barnaherberginu í ásættanlegt stand og huga svo kannski að því hvort við getum endurraðað eitthvað í stofunni til að koma hlutunum betur fyrir. Þarf maður endalaust að vera að betrum bæta híbýli sín?? Við þurfum alla vega að betrum bæta eldhúsið því við misstum uppþvottavélina í vikunni. Inga María og Ingó eru að flytja núna um helgina og sóttu vélina sína úr pössun...búhúhú. Þannig að nú þarf að fara spara fyrir uppþvottavél því þaðer alveg ómögulegt að vera búinn að venjast vélinni og þurfa svo að eyða öllum sínum tíma í að vaska upp. Þetta er alla vega það heimilistæki sem ég tými að eyða pening í því það er bara lúxus að þurfa ekki að vera sífellt með hendur í bleyti ;)

Ég held ég sé bara komin í ruglið hérna og það sem ég babla meikar ekki mikinn sens. Er svona að skrifa þetta með hálfum huga því ég er jú að horfa á TV. Svo er það bara beint í rúmið þegar myndin er búin. Svaka djamm á okkur ;)

Auf Wiedersehen

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skil vel ad tú saknir upptvottarvélarinnar. Ég hef aldrei átt svoleidis tæki og finnst ég bara vera hálf byrjud ad búa. Heimili án upptvottarvélar er bara hálft heimili.

Jórunn S. Gröndal sagði...

Úff já. Uppþvottur er tímaþjófur!!!

Kristr� sagði...

Iss...ég vaska alltaf upp og finnst það nú ekkert stórmál :) Enda er ég bara ein, erfiðara að vaska upp fyrir fleiri hehe

Alltaf gaman að lesa blogg hjá þér...keep it coming ;)

Knúsknús